30 október 2008

Jæja...

Þá er girlfriendið komið með sitt eigið blog. :D

Bjóðum hana velkomna til bloggheima.

Efnisorð:

25 nóvember 2007

Á meðan ég man ...

  • Eins og planað var, þá fórum við Skoffínið saman til Berlínar, M'Era Luna og Lundúna í ágúst. Það var fínt. Stoppuðum stutt í Berlín en náðum samt að líta á rosa fína tælenska matsölustaðin sem við höfðum uppgötvað þar í seinustu ferð. Mælum alveg eindregið með honum.
       Á M'Era Luna var hellidemburigning fyrstu nóttina en síðan steikjandi sólskin. Að öðru leiti var fínt að vera þar. Fínar hljómsveitir, skipulag til fyrirmyndar, skemmtilegur markaður og undir tjaldinu okkar vorum litlar mýslur í holunni sinni.
       London var versla, söfn, góður matur, söfn, rölta, versla, Camden, söfn, góður matur, labba um, Camden, smá bjór, söfn og Slimelight.
  • Ég dundaði mér við það í kvöld að fara í gegnum allar bloggfærslur hér og merkja þær með "labels" (Helvítis lygi. Ég byrjaði bara á þessu án þess að klára. Geri það seinna).
  • Skólinn er byrjaður aftur (og það eru strax að nálgast próf) ...(nánar seinna)
  • Er að skipta um vinnu ...(nánar seinna)
  • Er á leið til Finnlands yfir jólin ...(nánar seinna)
  • Soðin fiskur í kvöldmat. Kisumstrákum þótti það vera om nom nom nom
  • Kötturinn sem fékk heimili hér um seinustu jól er fyrir löngu hættur að vera kallaður Púki. Hann heitir Ófeigur.

Efnisorð: , , , , ,

04 nóvember 2005

Vinnuhelgi framundan.

Jæja. Þá ætla ég að bretta fram úr ermunum og vera duglegur þessa helgi. Þetta verður alsherjar vinnuhelgi. Ekkert djamm þetta skiptið. Það sem þarf að gera er:
  • Ég er tveimur vikum á eftir áætlun með að fara yfir skilaverkefni frá nemendum mínum. Þarf að vinna það upp. Ætti að klárast í kvöld.
  • Líta svo á námið, skoða stöðuna og athuga hvort ég þurfi kannski að segja mig úr einhverju eða hvort ég nái að komast það vel af stað að ég verði á góðu róli.
  • Svo er ég með eldhússkáp, ýmsar hillur, ljós og spegil sem á eftir að setja saman eða festa upp. Einnig eru veggir sem þarf að mála og á undan því þarf að sparsla í einhver göt og rifur.
Samt verður þetta vonandi ekki eintóm vinna og púl. Maður þarf að taka sér smá hlé inn á milli. Þá væri ekkert vera að skreppa með góðum vini/vinum (Hint, hint! Hafa samband!) í smá kaffihúsaferð, bíókvöld með nammiáti eða jafnvel bara smá létt 'chill'. Svo væri ekkert verra ef einhver nennir að koma til að hjálpa til eða jafnvel bara halda mér félagsskap.

Efnisorð: , , ,

03 nóvember 2005

Farið í bíó.

Fór í bíó í góðum vinahóp. Fórum að sjá Tim Burton's Corpse Bride. Mæli eindregið með henni. Tim Burton er snillingur og bregst okkur engan vegin með þessari mynd.
    Mig langar meira að segja að fara á hana aftur.

Efnisorð: ,

22 október 2005

Bíó og tilgangur lífsins.

Fór áðan í bíó með frænku minni. Fórum á "A History of Violence". Ekkert meistaraverk, frekar en flest allt sem kemur í bíó, en samt fín mynd. Þær eru allavega ekki margar bandarísku bíómyndirnar þar sem tekið er á afleiðingum ofbeldis á sálartetur manna án þess að fara út í að verða að vælumynd um fórnarlömb.
    Þökk sé athugasemd góðrar vinkonu minnar náði ég að sjá Monty Python snildina "The Meaning of Life" eins og ég ætlaði án þess að missa af meiru en rétt byrjuninni. Í lokin kemur svo boðskapurinn: "Verið góð við hvort annað, forðist feitan mat og lesið góða bók öðru hvoru". Ef þetta er tilgangur lífsins þá tel ég mig vera í nokkuð góðum málum. Mætti að vísu lesa meira af góðum bókum. Held allavega að námsbækurnar mínar teljist ekki með. Samt skemmtileg tilviljun að fá þennan boðskap nánast nýkominn úr bókabúð þar sem ég keypti fjórar bækur. Þó að þetta hafi ekki verið skáldsögur þá held ég að bækur frá efstu hæð Mál og Menningar geti alveg talist til góðra bóka.
    Í öðrum fréttum þá eru kisulingarnir ekki enn búnnir að læra að þeir eigi ekki að vera stöðugt að rápa inn og út. Maður er ögn þreyttur á að vera hlaupandi upp og niður stigan til að þóknast þeim. Reyna að ákveða sig, drengir!

Efnisorð: , ,

12 október 2005

Gott að eiga góða vini

Fór í heimsókn til vinkonu minnar í gærkvöld. Við gerðum nú óskup lítið og vorum ekkert mikið að tala saman. Ég var aðalega að hanga í tölvunni minni á meðan hún var í sinni eða að hafa sig til fyrir bíóferðina sem við fórum í seinna um kvöldið með tveimur vinum okkar. Kom við hjá henni aftur eftir bíóferðina og aftur vorum við aðalega að hanga í tölvunum.
    Merkilegt samt hvað það að hanga saman skildi eftir miklu meira en bíómyndin. Ekki það að það væri eitthvað út á myndina að setja, hún stóð alveg fyrir sínu. Málið er bara að það virðist vera með góða vini, sem manni þykir vænt um, að maður þarf ekkert endilega að vera að gera eitthvað merkilegt, spennandi eða stórskemmtilegt saman. Það eitt að vera að umgangast hvort annað skilur eftir ákveðna vellíðunartilfinningu sem er dýrmætari en hvaða stundarskemmtun sem er.
    Mér líður ennþá vel að innan eftir gærkvöldið.

Efnisorð: ,