17 janúar 2007

18 ára afmæli!!!!!

Yay!!! Var að halda upp á 18 ára afmæli. Ekki mitt eigið, hedlur 18 ára afmæli 18 ára afmælis míns. Þ.e.a.s. að 18 ára afmælið mitt átti 18 ára afmæli. Æ, þið skiljið hvað ég á við.

Allavega þá skrapp ég úr vinnuni og keypti fullt af kökum og fór með tilbaka. Horfði svo á eftir tveimur vínarbrauðslengjum, gulrótarköku og sjónvarpsköku kverfa oní mannskapin á rétt yfir korteri. Allir rosa glaðir og ánægðir með fá svona óvænt tölvupóst þegar farið var að nálgast lok vinnudags, þar sem boðað var til veislu með stuttum fyrirvara (þó án þess að upp væri gefið meira en að það væri vegna afmælis en ekkert minnst á hvaða afmæli).
Svo fór ég og hitti Skoffínið á Vegamót þar sem við fengum okkur að borða og höfðum það næs. Góður matur eins og alltaf hjá þeim.

Og þá er víst bara eftir að halda upp á mitt eigið afmæli.

Efnisorð:

12 nóvember 2006

Árshátíð

Fór á árshátíð Baggalúts í fylgd með góðu fólki og hitti þar enn fleira skemmtilegt fólk.

Maturinn var fínn, skemmtiatriðin voru einstök, kakóið var frábært og félagsskapurinn var til fyrirmyndar.

Þó að ég hefði kannski ekki verið eins duglegur og flestir aðrir við að blanda geði og taka þátt í gleðinni, hefði jafnvel verið frekar þögull á köflum, þá þrátt fyrir áhyggjur sumra um hið gagnstæða, þá skemmti ég mér dá vel. Var að vísu eitthvað þreyttur og orkulaus eftir vikuna, og eitthvað með hugann við það að ég þyrfti helst að geta komið ýmsu í verk daginn eftir og mætti því hvorki verða of ölvaður né vera of lengi að.

Ekki kom ég svo neitt miklu í verk daginn eftir, en það má að sjálfsögðu skrifa á minn eiginn reikning. Ég hélt mig nefnilega ekki við upphaflegu áætlun mína um að vera kannski til ellefu, í mesta lagi til tólf og ekki drekka neitt.

Annars er merkilegt hvað það var skrítin tilfinning þegar mér var tjáð áhyggjur af því hvort mér væri nokkuð að leiðast. Á sama augnablikinu upplifði maður bæði góða og slæma tilfinningu. Manni hlýnaði um hjartarætur af að hugsa út í að viðkomandi þætti nógu vænt um mann til að hafa þessslags áhyggjur en á sama tíma fékk maður samviskubit og leið ögn illa yfir því að vera kannski að skemma skemmtun viðkomandi með því að vera valdur að óþarfa áhyggjum.

Efnisorð:

11 nóvember 2005

Letin er lúmskur fjandi.

(Þessi póstur er kannski óþarflega langur. Sérstaklega miðað við hvað ég ætlaði að vera stuttorður og bara rétt aðeins að segja frá stöðunni. En jæja, nenni ekki að breyta því úr því sem komið er.)

Ég virtist í kvöld vera búinn að missa dampinn. Ekki nóg með það að manni hafi orðið lítið úr verki í gær þá ekki bara svaf ég ferlega yfir mig í dag heldur auk þess varð ekkert úr verki fyrr en um kvöldið.
    Þetta byrjaði á því að í gær svaf ég aðeins lengur en ég ætlaði mér. Varð því lítið úr verki en mætti þó á réttum tíma í skólan. Í langa gatinu frá eitt til þrjú, í stað þess að læra eftir matinn, þá lagðist ég út af í sófan niðrí Nörd og svaf til fjögur. Á því tímabili fannst mér ég bara eiga skilið að fá þennan svefn. Ég væri búinn að vera svo duglegur og ætlaði auk þess að gera svo mikið um kvöldið. Ég var svo ekki búinn í skólanum fyrr en eftir sjö. Pantaði pitsu þegar ég kom heim, sótti hana rétt yfir átta og var búinn með hana um níu. Var svo að bauvast á netinu fram yfir tíu og fór þá fyrst að gera eitthvað. Það var nú ekkert mikið sem ég náði að gera það kvöldið. Jú, færði eldhúsborðið og nýja skápinn úr eldhúsinu.
    Í morgun tókst mér næstum því að vakna á réttum tíma en datt fyrst niðrí það að "snúsa" í smá tíma og sofnaði svo endanlega þannig að ég komst ekki á lappir fyrr en klukkan að nálgast þrjú. Var svo til klukkan að verða fjögur að fá mér morgunmat og lesa daglega teiknimynda- og bloggsíðupakkann á netinu. Rauk þá af stað út í banka að borga reikninga. Þegar ég kom til baka var mér eitthvað hálf kalt og fékk þá flugu í höfuðið að það væri tilvalið að setjast niður í rólegheitunum, með heitt te í hönd og rétt aðeins líta í EVE á meðan teið væri að ylja mér. Ég ætti nú hvort sem er eftir að blogga, gæti kannski gert það á meðan. Hefð alveg nógan tíma til að gera eitthvað af viti eftir það.
    Já, já. Klukkan að verða sjö var ég enn að og gerði mér þá grein fyrir að svona væri þetta ekki alveg að ganga. Var byrjaður á þessu bloggi. Hætti fljótlega í EVE og ákvað að þó að ég virtist vera búinn að missa dampinn þá þýddi ekkert að láta það á sig fá. Maður þyrfti bara að rífa sig af stað aftur. Var að vísu orðinn svangur þannig að það tafðist ögn. Eftir matinn kom ég mér þó loks í gang. Skellti mér inn í eldhús. Kláraði þar að sparsla það sem hafði gleymst í loftinu, reif niður lista sem var fyrir nýja skápnum, sparslaði í rifuna þar undan, færði ísskápinn á mitt gólfið, setti dagblöð yfir allt, málaði loftið og gekk svo frá.
    Ég hafði haft vit á því að gera ráð fyrir að það gæti orðið ósvefnvænt í íbúðinni fyrir málingarlykt. Ég hafði því fengið vilyrði fyrir því að fá að gista í sófanum hjá vinkonu minni og er þar nú. Það er bæði skóli, meiri málingarvinna, tiltekt og vísindaferð sem bíður mín á morgun þannig að ég læt þetta duga að sinni.

Efnisorð: , ,

03 nóvember 2005

Farið í bíó.

Fór í bíó í góðum vinahóp. Fórum að sjá Tim Burton's Corpse Bride. Mæli eindregið með henni. Tim Burton er snillingur og bregst okkur engan vegin með þessari mynd.
    Mig langar meira að segja að fara á hana aftur.

Efnisorð: ,

22 október 2005

Bíó og tilgangur lífsins.

Fór áðan í bíó með frænku minni. Fórum á "A History of Violence". Ekkert meistaraverk, frekar en flest allt sem kemur í bíó, en samt fín mynd. Þær eru allavega ekki margar bandarísku bíómyndirnar þar sem tekið er á afleiðingum ofbeldis á sálartetur manna án þess að fara út í að verða að vælumynd um fórnarlömb.
    Þökk sé athugasemd góðrar vinkonu minnar náði ég að sjá Monty Python snildina "The Meaning of Life" eins og ég ætlaði án þess að missa af meiru en rétt byrjuninni. Í lokin kemur svo boðskapurinn: "Verið góð við hvort annað, forðist feitan mat og lesið góða bók öðru hvoru". Ef þetta er tilgangur lífsins þá tel ég mig vera í nokkuð góðum málum. Mætti að vísu lesa meira af góðum bókum. Held allavega að námsbækurnar mínar teljist ekki með. Samt skemmtileg tilviljun að fá þennan boðskap nánast nýkominn úr bókabúð þar sem ég keypti fjórar bækur. Þó að þetta hafi ekki verið skáldsögur þá held ég að bækur frá efstu hæð Mál og Menningar geti alveg talist til góðra bóka.
    Í öðrum fréttum þá eru kisulingarnir ekki enn búnnir að læra að þeir eigi ekki að vera stöðugt að rápa inn og út. Maður er ögn þreyttur á að vera hlaupandi upp og niður stigan til að þóknast þeim. Reyna að ákveða sig, drengir!

Efnisorð: , ,