25 mars 2006

"Laugar"dagur

Loðmundur fór í bað í dag. Hann var ekkert sérstaklega sáttur.
   Samt ekki eins brjálaður og oft áður. Kannski vegna þess að ég er búinn að læra það að kettir hræðast hávaðann í vatnsbununni meira en vatnið sjálft. Einnig lagði ég mig enn frekar fram við að reyna að róa hann niður. Samt náði hann að læsa klónum í upphandlegginn á mér og vildi lítið leyfa mér að þurrka sér með handklæði.
   Allavega þá er hér ein frekar blaut kisa sem ylmar af kamillíubarnasjampói.

08 mars 2006

Áríðandi tilkynning.

Hér með tilkynnist að undirritaður hafi nú ekkert bloggað mikið undanfarið.