20 desember 2007

Ekki skánnar það.

Þá er maður kominn með einkunnir úr prófunum og laus við þær áhyggjur.
En ekki skánaði það mikið við það. Ég fékk áttu og níu. Meðaleinkunnin hækkaði við það um 0,11, úr 7,82 í 7,93. Í fyrstu hljómar það dá vel, þar til maður gerir sér grein fyrir því að þá er einfaldlega orðið þeim mun erfiðara að bæta sig næst. Þó ég fengi eintómar áttur það sem eftir er, þá dygði það einungis til að hækka meðaleinkunnina um samtals 0,03. Jafnvel eintómar níur dygðu ekki til að halda við það nýfengna viðmið að hækka meðaleinkunnina um 0,11 á önn. Til þess þyrfti tvær tíur og restin níur.
Gerir fólk sér ekkert grein fyrir hvað það sé erfitt að fá tíu í háskólanámi?
Það væri þá helst að maður gæti reynt að endurtaka þau fög sem gekk verst í til að hækka þær einkunnir. En hefur maður tíma til þess? Ekki getur maður verið endalaust í skóla.
Þetta er nú meira vesenið. :S

Ath. Ekki taka þetta rant mitt alvarlega. Fyrir utan að tölunar eru réttar, þá er þetta óttalegt bull hjá mér. Ég er alveg fullkomlega sáttur við þessar einkunnir og vel það.
Í alvörunni. Ég er ánægður :D

Efnisorð: , ,

14 desember 2007

Þá eru prófin búin. En þau valda mér áhyggjum.

Ég er með smá áhyggjur af því að þau gætu lækkað meðaleinkunn mína. :p

En það er líka það eina sem ég get haft áhyggjur af. Er vel öruggur um að hafa náð prófunum.:D

Efnisorð: ,

25 nóvember 2007

Á meðan ég man ...

  • Eins og planað var, þá fórum við Skoffínið saman til Berlínar, M'Era Luna og Lundúna í ágúst. Það var fínt. Stoppuðum stutt í Berlín en náðum samt að líta á rosa fína tælenska matsölustaðin sem við höfðum uppgötvað þar í seinustu ferð. Mælum alveg eindregið með honum.
       Á M'Era Luna var hellidemburigning fyrstu nóttina en síðan steikjandi sólskin. Að öðru leiti var fínt að vera þar. Fínar hljómsveitir, skipulag til fyrirmyndar, skemmtilegur markaður og undir tjaldinu okkar vorum litlar mýslur í holunni sinni.
       London var versla, söfn, góður matur, söfn, rölta, versla, Camden, söfn, góður matur, labba um, Camden, smá bjór, söfn og Slimelight.
  • Ég dundaði mér við það í kvöld að fara í gegnum allar bloggfærslur hér og merkja þær með "labels" (Helvítis lygi. Ég byrjaði bara á þessu án þess að klára. Geri það seinna).
  • Skólinn er byrjaður aftur (og það eru strax að nálgast próf) ...(nánar seinna)
  • Er að skipta um vinnu ...(nánar seinna)
  • Er á leið til Finnlands yfir jólin ...(nánar seinna)
  • Soðin fiskur í kvöldmat. Kisumstrákum þótti það vera om nom nom nom
  • Kötturinn sem fékk heimili hér um seinustu jól er fyrir löngu hættur að vera kallaður Púki. Hann heitir Ófeigur.

Efnisorð: , , , , ,

17 nóvember 2007

Bara þannig að það sé á hreinu...

... ég er ekki hættur að blogga.



Ég er bara í óeðlilega löngu hléi.

Efnisorð:

01 nóvember 2005

Ég gæti ekki verið meira ósammála

Líkurnar á að ég fremji sjálfsmorð eru nánast engar. Það væri uppgjöf og það er ekki minn stíll. Ég er of þrjóskur til þess. Samt fæ ég eftirtalda niðurstöðu. Kannski það segi meira um hve mikið er að marka prófið en um mig.
You scored as Suicide. Your death will be suicide. What more can I say? Fact: Suicide is a permanent solution to a temporary problem. If you want to know hwo you will commit suicide, take a look at your second highest percentage on the bar graphs.

Suicide
93%
Disappear
87%
Bomb
67%
Natural Causes
67%
Posion
60%
Disease
53%
Stabbed
47%
Suffocated
33%
Eaten
33%
Cut Throat
27%
Gunshot
27%
Drowning
20%
Accident
20%

How Will You Die??
created with QuizFarm.com

Efnisorð: ,

21 október 2005

Tíminn og vatnið.

Furðulegt hvernig sumar vikur nánast hverfa án þess að maður taki eftir því. Þessi vika er ein af þeim. Mér líður eins og bara rétt áðan hafi verið mánudagur og nú er að verða kominn föstudagur. Mér finnst ég ekki hafa gert neitt þessa vikuna. Svaf á mánudag og hálfan þriðjudag en mættu þó í kennslutímann minn og fór á kaffíhúsfund um kvöldið. Mætti líka í kennslutímann minn á miðvikudag (þó enginn af nemendum mínum). Á fimmtudag þá gerði ég ... uhm ... blah!
    Jú, ég náði í vikunni að þvo tvær vélar af þvotti. Sækja nýja vírusvörn, eldvegg, 'spyware'-vörn og tvö 'season' af sjónvarpsþættinum 'Carnivale'. Setja inn hugbúnaðinn ásamt því að henda út gömlum. Brenna þættina á disk. Fara til sýslumanns að láta þinglýsa lánabreytingu. Sækja mér upplýsinga um öryggi á Windows vélum. Og heimsækja Báru vinkonu.
    Samt bara smáhlutir miðað við hvað ég ætlaði að gera, hefði þurft að gera og á enn eftir að gera. Leiðist hvað ég kem litlu úr verki.

Efnisorð: , ,

05 október 2005

Hrægammarnir nálgast! ... eða hvað?

Þegar ég greip Fréttablaðið í morgun vakti það athyggli mína að fyrir ofan forsíðuna var auglýst í æpandi skærum litum "8bls bæklingur frá Tölvulistanum stútfullur af tilboðum á tölvum og tölvubúnaði í Fréttablaðinu í dag". Mér varð strax hugsað að nú hefðu einhverjir lekið í Tölvulistan fréttir um að ég væri að fá lánið mitt og að því væri rétti tímin til að útbúa sérstaklega þykkan bækling til að klófesta mig. Vitandi af þessari gildru inní blaðinu tókst mér þó ekki að standast forvitnina og fletti blaðinu þar til kom að bæklingnum. Þá kom í ljós að annaðhvort fengu þeir rangar upplýsingar eða þeir voru ekkert á höttunum eftir mér.
    Helmingurinn af bælkingnum var undirlagður undir fartölvutilboð. Halló! Ég er nýbúinn að fá mér nýja fartölvu.
    Einn fjórði var undirlagður undir turnvélapakka þar sem innifalið var skjár, lykklaborð, mús og hátalarar. Fuss og svei. Ég er með fínan skjá, lykklaborð, hátalar og alles. Auk þess sem mig vantar ekki nýja turnvél. Ég hef aðeins áhuga að uppfæra þessa sem ég er með.
    Þrír fjórðu af restinni fór svo undir prentara. Ég er með prenntara sem ég er varla búinn að taka úr kassanum.
    Restin var svo eitthvað smotterí eins og skannar, ljósmyndavél (ég á vél, takk fyrir!), pappír, blek og dót.
    Ok, bara til að hafa það á hreinu næst þegar þið sendið einhvern bækling til mín (Ég veit að þið eruð að lesa þetta! Hvar annarsstaðar hefðuð þið getað frétt af láninu?), það sem mig vantar er að auka diskapláss í turnvélinni (og í leiðinni að losna við gamla háværa diskin sem er í), athuga hversu mikið sé hægt að minnka hávaðan með t.d. nýjum aflgjafa og/eða viftum og athuga hvort hún ráði við sjónvarpskort svo ég geti horft á sjónvarpið í henni. Þetta er allt og sumt. Ekkert neitt meira kjaftæði. Nei, ég vill ekki nýtt móðurborð. Já ég veit að þetta er Pentium II örgjörvi, ég þarf ekkert meira í þessa vél. Takk fyrir.

Efnisorð: ,

03 október 2005

Lazarus :S

Blah.

Einmitt þegar ég ætla að taka mig á og hef meira en nóg að gera þá veikist ég. Æðislegt.

Jæja, lítið við því að gera annað en að sofa og hanga á netinu. Þurfti þó fyrst að stelast út því kattamaturinn kláraðist í gær. Ekki mega kisulingarnir mínir svelta.

Efnisorð: , ,

02 október 2005

Hugleiðing um fjölda athugasemda.

Rosa er fólk búið að vera duglegt að skilja eftir athugasemdir í bloggið mitt eða hitt þó heldur.
Ætli maður fengi kannski eitthvað fleiri athugasemdir ef maður léti einhverja fleiri vita af því en þessar tvær manneskjur sem vita af því?
Það er sko aldrei að vita. Best að tékka á því.

Efnisorð:

27 september 2005

Það skynsamlegasta sem hægt er að gera um miðja nótt er...

Jæja, álpaðist til að sóa tíma mínum í að taka þetta greindarpróf í stað þess að vera skynsamur og annað hvort gera eitthvað af því sem ég ætlaði að gera í dag og þarf að gera en gerði ekki. Eða þá að fara að sofa þannig að ég gæti kannski vaknað nógu snemma til að gera eitthvað af því.
Fékk víst út úr prófinu að ég væri með IQ upp á 145. Ekki slæmt.
Af hverju get ég þá ekki drullast til að hegða lífi mínu af meiri skynsemi í stað þess að gera heimskulega hluti?

Efnisorð: ,

27 júlí 2005

Hef ekkert að segja

Blah!
Jæja, fyrsta bloggið og ég hef ekkert að segja.

Efnisorð: