25 janúar 2012

Ekki alveg hættur

... meira seinna.

10 janúar 2010

Netpróf endurtekið enn einu sinni

Prófaði að endurtaka enn einu sinni. Útkoman var alls ekki sú sama og seinustutvö skiptin. Það hefur líka heilmikið breyst síðan þá. Yay!!

This Is My Life, Rated
Life:
8.8
Mind:
7.9
Body:
9.4
Spirit:
8.8
Friends/Family:
5.1
Love:
9.2
Finance:
9.4
Take the Rate My Life Quiz

30 október 2008

Jæja...

Þá er girlfriendið komið með sitt eigið blog. :D

Bjóðum hana velkomna til bloggheima.

Efnisorð:

06 febrúar 2008

Ekki lengur bara kisustrákar á heimilinu.

Jæja. Þá erum við kisustrákarnir ekki lengur einir á heimilinu. Það er ein sæt og falleg flutt inn til okkar.

26 desember 2007

Jólakötturinn

Ef einhver skyldi vera í einhverjum vafa um hvernig jólakötturinn líti út, þá hef ég ekki bara séð dýrið, heldur náði ég myndum af honum.

Efnisorð: ,

20 desember 2007

Ekki skánnar það.

Þá er maður kominn með einkunnir úr prófunum og laus við þær áhyggjur.
En ekki skánaði það mikið við það. Ég fékk áttu og níu. Meðaleinkunnin hækkaði við það um 0,11, úr 7,82 í 7,93. Í fyrstu hljómar það dá vel, þar til maður gerir sér grein fyrir því að þá er einfaldlega orðið þeim mun erfiðara að bæta sig næst. Þó ég fengi eintómar áttur það sem eftir er, þá dygði það einungis til að hækka meðaleinkunnina um samtals 0,03. Jafnvel eintómar níur dygðu ekki til að halda við það nýfengna viðmið að hækka meðaleinkunnina um 0,11 á önn. Til þess þyrfti tvær tíur og restin níur.
Gerir fólk sér ekkert grein fyrir hvað það sé erfitt að fá tíu í háskólanámi?
Það væri þá helst að maður gæti reynt að endurtaka þau fög sem gekk verst í til að hækka þær einkunnir. En hefur maður tíma til þess? Ekki getur maður verið endalaust í skóla.
Þetta er nú meira vesenið. :S

Ath. Ekki taka þetta rant mitt alvarlega. Fyrir utan að tölunar eru réttar, þá er þetta óttalegt bull hjá mér. Ég er alveg fullkomlega sáttur við þessar einkunnir og vel það.
Í alvörunni. Ég er ánægður :D

Efnisorð: , ,

14 desember 2007

Þá eru prófin búin. En þau valda mér áhyggjum.

Ég er með smá áhyggjur af því að þau gætu lækkað meðaleinkunn mína. :p

En það er líka það eina sem ég get haft áhyggjur af. Er vel öruggur um að hafa náð prófunum.:D

Efnisorð: ,

11 desember 2007

Er ekki alltaf allt spurning um viðhorf?

Efnisorð:

26 nóvember 2007

Netpróf endurtekið

Prófaði að endurtaka. Útkoman var ekki alveg sú sama og seinast. Það má eflaust draga einhvern lærdóm af því.

This Is My Life, Rated
Life:
6.4
Mind:
6.8
Body:
6.5
Spirit:
6.3
Friends/Family:
3.1
Love:
1.4
Finance:
9.1
Take the Rate My Life Quiz

Efnisorð: ,

25 nóvember 2007

Á meðan ég man ...

  • Eins og planað var, þá fórum við Skoffínið saman til Berlínar, M'Era Luna og Lundúna í ágúst. Það var fínt. Stoppuðum stutt í Berlín en náðum samt að líta á rosa fína tælenska matsölustaðin sem við höfðum uppgötvað þar í seinustu ferð. Mælum alveg eindregið með honum.
       Á M'Era Luna var hellidemburigning fyrstu nóttina en síðan steikjandi sólskin. Að öðru leiti var fínt að vera þar. Fínar hljómsveitir, skipulag til fyrirmyndar, skemmtilegur markaður og undir tjaldinu okkar vorum litlar mýslur í holunni sinni.
       London var versla, söfn, góður matur, söfn, rölta, versla, Camden, söfn, góður matur, labba um, Camden, smá bjór, söfn og Slimelight.
  • Ég dundaði mér við það í kvöld að fara í gegnum allar bloggfærslur hér og merkja þær með "labels" (Helvítis lygi. Ég byrjaði bara á þessu án þess að klára. Geri það seinna).
  • Skólinn er byrjaður aftur (og það eru strax að nálgast próf) ...(nánar seinna)
  • Er að skipta um vinnu ...(nánar seinna)
  • Er á leið til Finnlands yfir jólin ...(nánar seinna)
  • Soðin fiskur í kvöldmat. Kisumstrákum þótti það vera om nom nom nom
  • Kötturinn sem fékk heimili hér um seinustu jól er fyrir löngu hættur að vera kallaður Púki. Hann heitir Ófeigur.

Efnisorð: , , , , ,